Íslenski hesturinn, sem kom með með landnámsmönnum fyrir yfir þúsund árum, er merkileg skepna með sínar fimm gangtegundir, fet, brokk, stökk, tölt og skeið. Hann er af mongólskum uppruna af hestkyni sem er skylt norska lynghestinum. Íslenski hesturinn er ekki hár í loftinu, en óvenju sterkbyggður, heilsuhraustur og veðurþolinn, enda hefur hann þurft að þola íslenskt veðurfar í meira en þúsund ár, án blöndunnar við önnur hestakyn. Það sem hefur gert íslenska hestinn vinsælan hér heima og í útlöndum, er hve þýður og geðgóður hann er, fullkominn til útreiða og vinskapar. Íslenski hesturinn hefur yfir 40 grunnliti, og hundarð litaafbrigði, en algengustu grunnlitirnir eru tveir, rauður og brúnn. Algengt er að íslensk hross nái 25 vetra aldri. Fyrir bílaöld, var hann alltaf kallaður þarfasti þjóninn, enda eina farartækið til að komast milli staða á Íslandi, langt fram á tuttugustu öldina, nema auðvitað á tveimur jafnfljótum.
Dalasýsla – Austur Húnavatnssýsla 23-24/02/2022 11:07-17:11 : A7R III -A7R IV : FE 1.2/50mm GM – FE 1.8/135mm GM
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson