Vatnajökull er á suðausturhorni Íslands, 7.700 km² stór, og stærsti jökull í heimi utan heimskautasvæðanna. Hann er þriðji stærsti jökull í Evrópu, eftir Severny jöklinum á Novaya Zemlya í Rússlandi og Austfonna á Svalbarða. Meðalþykkt Vatnajökuls er um 400 metrar, og nær hann eins kílómetra þykkt, það sem hann er mestur. Jökullinn liggur allur innan Vatnajökulsþjóðgarðs, og eru margir af fallegustu stöðum lýðveldisins í næsta nágrenni við þennan stóra jökul, sem þekur hátt í átta prósent af Íslandi. Undir Vatnajökli eru þrjár mjög stórar eldstöðvar, Bárðarbunga sem er eitthvað að bæra á sér núna, Öræfajökull, stærsta og hæsta fjall landsins, og síðan Grímsvötn, virkasta eldstöð landsins, staðsett á miðjum jöklinum. Út frá Vatnajökli ganga um þrjátíu skriðjöklar, og margar af vatnsmestu ám landsins eiga upptök sín í Vatnajökli. Jökulsá á Fjöllum, Jökulsá á Brú / Dal, Jökulsá á Breiðamerkursandi, Jökulsá í Lóni, Lagarfljót, Skjálfandafljót, Þjórsá, Kolgríma, Núpsvötn, Skeiðará og Skaftá. Vatnajökull og svæðið umhverfis hann er einstakt, hér eru örfá sýnishorn.
Vatnajökull 27/01/2025 : RX1R II, A7R IV – FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z – Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson