Grasagarðurinn í Laugardal er eitt af djásnum höfuðborgarinnar. Hann var stofnaður árið 1961, og er eitt af söfnum Reykjavíkur. Hlutverk safnsins, garðsins er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu, rannsókna og auðvitað yndisauka fyrir borgarbúa. Heildarfjöldi tegunda í garðinum, með undirtegundum er rúmlega 3.500. Gróðurinn, plöntusafnið sýnir auðvitað glöggt, fjöbreytni þess gróðurs sem vex hér á há norðri. Þarna eru rúmlega 300 plöntur af þeim 485 tegundum blómplantna og byrklinga sem teljast til íslensku flórunnar. Og á þessum árstíma, snemmvors, er einn skemmtilegasti tíminn að heimsækja garðinn, eins og ljósmyndari Icelandic Times gerði í morgun, sjá líf kvikna eftir langan vetur.
Reykjavík 06/04/2022 10:50 – 11:37 : A7R IV – A7C : FE 1.8/20mm G – FE 2.8/90mm G
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson