Málverk -ekki miðill – Málþing í Hafnarborg.

Málþing í Hafnarborg.

Fimmtudagskvöldið 14. September kl. 20 verður haldið málþing Í tengslum við sýninguna Málverk – ekki miðill sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Þar verður viðfangsefnum sýningarinnar gerð skil með þátttöku fræðimanna og listamanna sem taka þátt í sýningunni.

Sýningin fjallar um málverkið og forsendur þess í því eftir-miðla umhverfi sem einkennir list samtímans. Er hún tækifæri til að hugsa um þá hugmynd að málverk verði best skilið sem eitthvað annað en sá miðill sem listamaðurinn velur sér að vinna í.
Sýningarstjóri er Jóhannes Dagsson en hugmynd hans að sýningunni var valin úr innsendum sýningartillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu ársins 2017 í Hafnarborg.

Þátttakendur málþingsins eru:

Jóhannes Dagsson, sýningarstjóri, listheimspekingur og lektor við Listaháskóla Íslands, Gunnar J. Árnason, listheimspekingur, Fritz Hendrik Berndsen, listamaður og þátttakandi í sýningunni, Hulda Stefánsdóttir, listamaður og þátttakandi í sýningunni, og Þorgerður Þórhallsdóttir, listamaður og þátttakandi í sýningunni.

Author

  • Editorial

    Icelandic Times Magazine - the only magazine in Iceland published in English, German, French and now Chinese. Icelandic Times Magazine's sister publication Land og Saga is published in Icelandic.

    View all posts
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0