Háey 1, á miðri mynd, siglir inn í Reykjavíkurhöfn. Í bakgrunni er Grænlenski togarinn Ilivileq, frá Qaqortoq fullkomnasta fiskiskip í heimi. Hann er gerður út í samvinnu og samstarfi íslendinga og grænlendinga.

Frá Reykjavík til Raufarhafnar

Hér sést línubáturinn Háey 1, ÞH295 nýjasta skipið í íslenska fiskiskipaflotanum, sigla inn í Reykjavíkurhöfn. Báturinn sem er 30 brúttó tonna plastbátur, 13,25 metra langur og verður gerður út af GPG Seafood frá Raufarhöfn. Stað sem er lang lengst frá Reykjavík, sjóleiðina. Útgerðarfyrirtækið GPG Seafood, sem lét smíða bátinn hjá Víkingbátum á Esjumelum, er með starfsemi á þremur stöðum á norðausturhorninu, Húsavík þar sem höfuðstöðvarnar eru og síðan á Raufarhöfn og Bakkafirði, sum sumir segja að sé einn fallegasti staður á Íslandi.

Reykjavík 09/11/2021 14:41 – A7C : FE 2.5/40mm G
Ljósmynd og texti : Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0