Bessastaðakirkja á Álftanesi, stendur nokkra metra frá forsetasetrinu á Bessastöðum. Bygging kirkjunnar hófst 1773 og var lokið 1823. Perluna á Öskjuhlíð má greina vinstra megin við Bessastaði. Kópavogur blasir við hægra megin við Bessastaði.

Guðshúsin í Garðabæ

Garðabær er sjötti fjölmennasti bær á landsins, og hefur íbúum fjölgað þar hraðast undanfarin ár af öllum sveitarfélögum á landinu. Íbúatala bæjarins er nú 17.693, en þeir voru 7.711 árið 2008. Í bænum er mjög öflugt íþróttastarf, en Íþróttafélagið Stjarnan, stofnað árið 1960 af séra Bjarna Friðrikssyni, spilar í efstu deild, bæði hjá konum og körlum í stærstu deildunum, fótbolta, handbolta og körfubolta. Auk þess er Stjarnan með mjög öflugar sund- og fimleikadeildir. Í bænum, sem liggur milli Hafnarfjarðar í suðri og Kópavogs í norðri, eru þrjár kirkjur, hver annarri ólíkri. Bærinn er ungur, fékk kaupstaðarréttindi árið 1976.

 

Vídalínskirkja er stærsta kirkja Garðabæjar, vígð árið 1995, og kennd við Jón Biskup Vídalín í Görðum, en þar fæddist hann og þar þjónaði hann sem prestur árin 1696 til 1698 er hann var vígður biskup að Skálholti. Kirkjan og áfast safnaðarheimili er hannað af Skúla H Norðdahl arkitekt.
Bessastaðakirkja á Álftanesi, stendur nokkra metra frá forsetasetrinu á Bessastöðum. Bygging kirkjunnar hófst 1773 og var lokið 1823. Perluna á Öskjuhlíð má greina vinstra megin við Bessastaði. Kópavogur blasir við hægra megin við Bessastaði.

Garðabær 21/03/2022 09:01 -09:57 :  A7R IV – RX1R II :  FE 1.8/135mm GM – 2.0/35mm Z
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0