Kirkjufell

Kirkjufell er afar sérstakt í landslagi á Snæfellsnesi og vekur athygli vegna lögunar sinnar. Jon Snow og áhöfn hans leituðu að þessu sérstaka fjallaformi og fundu Kirkjufell. Þar voru tekin upp atriði í 7. þáttaröð.
Snæfellsnes er annars þekkt fyrir mikla og sérstaka náttúrufegurð. Þar eru ótal sögustaðir, tignarlegur jökull og strandlengja þar sem rennandi hraun skapaði alls kyns kynjamyndir og listaverk.
Snæfellsjökull vestast á nesinu er eldstöð sem gaus síðast fyrir um 1.750 árum. Hann er sögusvið bókarinnar Leyndardómar Snæfellsjökuls eftir franska rithöfundinn Jules Verne. Söguhetjan fer niður í gíg og ferðast allt að miðju jarðar!
Snæfellsnes er sömuleiðis sögusvið Kristnihalds undir Jökli, vinsællar bókar eftir íslenska Nóbelsverðlaunahöfundinn Halldór Laxness,. Kvikmynd var gerð eftir sögunni og frumsýnd 1989.
Texi og Mynd: Þorsteinn Ásgeirsson

Author

  • Editorial

    Icelandic Times Magazine - the only magazine in Iceland published in English, German, French and now Chinese. Icelandic Times Magazine's sister publication Land og Saga is published in Icelandic.

    View all posts
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0