Kort sem teiknað af Reykjavík árið 1801, eru göturnar í bænum fimm, og einn ónefndur stígur, milli Dómkirkjunnar og Austurstrætis. Stígurinn er upphafið af Pósthússtræti, og síðan er gatan nefnd eftir fyrsta pósthúsi Reykjavíkur sem stóð rétt austan við kirkjuna, þar sem nú er Hótel Borg. Hótel var fyrsta alvöru hótelið á Íslandi, byggt fyrir alþingishátíðina 1930 af glímukappanum Jóhannesi Jósefsyni og hans konu, Karólínu Amalíu Guðlaugsdóttur. Húsið teiknaði Guðjón Samúelsson eins og Hallgrímskirkju, Akureyrarkirkju, Sundhöllina, Háskóla Íslands, Landspítalan og auðvitað Þjóðleikhúsið. Hótel Borg var hertekin af bandamönnum í seinni heimsstyrjöldinni. Pósthús Reykjavíkur var síðan flutt 1914 í stórhýsi, teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni, á horni Austurstrætis og Pósthússtræti. Húsið er nú friðað og þar er nú mathöll, Pósthús Food Hall & Bar.
Ljósmyndir og texti: Páll Stéfánsson
Reykjavík 05/04/2023 : A7R IV, RX!R II : FE 1.8/14mm GM, 2.0/35mm Z