Frá sýninging Sæmundar Þórs Helgasonar á Nýlistasafninu „Af hverju er Ísland svona fátækt?”

Af hverju…?

Á Nýlistasafninu í Marshallhúsinu í Örfyrirsey við vestanverða Reykjavíkurhöfn er stórt spurt í sýningu listamannsins Sæmundar Þórs Helgasonar „Af hverju er Ísland svona fátækt?”.  Sýningu sem myndar samtal við verk úr safneign Nýlistasafnsins, sýningarstjóri er Odda Júlía Snorradóttir. Sæmundur Þór tók viðtöl við venjulegt fólk í í aðdraganda jóla og voru þeir spurðir út í fátækt á Íslandi. Í verki Sæmundar eru svörum viðmælenda skipt yfir á nokkra flatskjái sem marka einnig kaflaskil á sýningunni sem samræmist hverri spurningu — Hvað er fátækt? Er fátækt á Íslandi? Hvers vegna (ekki)? Hvernig getur Ísland risið upp úr fátækt? Viðtölin minna á fréttaflutning RÚV um fréttatengd efni. Ásamt verki Sæmundar eru til sýnis verk úr safneign Nýlistasafnsins sem hafa verið gaumgæfilega valin út frá þeim svörum sem fengust í viðtölunum. Aðrir listamenn á sýningunni eru Ásta Ólafsdóttir, Bjarki Bragason, Daði Guðbjörnsson, Erling Klingenberg, Geoffrey Hendricks, G.Erla, Hildur Hákonardóttir, Íris Elfa Friðriksdóttir, John Cage, Niels Hafstein, Rúna Þorkelsdóttir, Snorri Ásmundsson, Steingrímur Eyfjörð og Wiola Ujazdowska.

Samkvæmt nýjustu tölum Alþjóðabankans erum við tíunda ríkasta þjóð í heimi með GNI upp á 68.220 USD á mann, Færeyjar er sæti ofar, með 69.590 USD. Efst tróna tvö smáríki, Bermuda með 125.240 USD á mann, síðan Liechtenstein með 116.600 USD. Noregur er í þriðja sæti. Síðan kemur Luxembourg, Singapore og Sviss. Síðan Írland (kemur á óvart), síðan Mön, Bandaríkin og Danmörk. Hænufeti á undan Katar, sem er sæti ofar en bræður okkar í Færeyjum, og síðan við íslendingar í tíunda sæti af tæplega 200 ríkjum heims. Fátækast Búrundi með 240 USD á mann, fimmtíu dollurum minna en Afganistan sem situr i næst neðsta sætinu. Sómalía er þriðja fátækasta land veraldar, með GNI upp á 470 USD á hvert mannsbarn.

Frá sýninging Sæmundar Þórs Helgasonar á Nýlistasafninu „Af hverju er Ísland svona fátækt?”
Frá sýninging Sæmundar Þórs Helgasonar á Nýlistasafninu „Af hverju er Ísland svona fátækt?”
Frá sýninging Sæmundar Þórs Helgasonar á Nýlistasafninu „Af hverju er Ísland svona fátækt?”
Marshallhúsið
Frá sýninging Sæmundar Þórs Helgasonar á Nýlistasafninu „Af hverju er Ísland svona fátækt?”

Reykjavík 31/01/2024 – A7C : FE 1.8/20mm G

 
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0