Frá sýningunni, Hamskipti - Listsköpun Gerðar Helgadóttur í Gerðarsafni í Kópavogi

Gerðarsafn 30 ára

Upphaf Gerðarsafns – Listasafns Kópavogs, má rekja til ársins 1977, þegar erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928-1975), færðu Lista- og menningarsjóði Kópavogs öll verk dánarbús Gerðar, að því tilskildu að bærinn byggði listasafn, sem sýndi verk hennar, og héldi minningu hennar á lofti. Gerðarsafn, var hannað af Benjamín Magnússyni, og opnað árið 1994, fyrir þrjátíu árum í Borgarholti í miðbæ Kópavogs, rétt austan við Kópavogskirkju. Í kirkjunni eru steindir gluggar eftir Gerði, sem framfæra lífsgönguna frá vöggu til grafar. Í tilefni þrjátíu ára afmælisins er blásið í lúðra, með sýningunni Hamskipti – Listsköpun Gerðar Helgadóttur. Frábær sýning sem sýnir kraftinn í þessum myndlistar jötni. Eins og segir í sýningarskrá; Sköpunarkraftur Gerðar var mikill, hugmyndirnar óteljandi og athugun hennar djúp og leitandi. Gerður var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi.

Hún ögraði viðurkenndum hugmyndum um myndlist með tilraunakenndri nálgun sinni. Færni hennar var gífurleg, hún tileinkaði sér tækni fjölda flókinna aðferða og vann þvert á miðla, skapandi, dansandi, svífandi lipur, en á sama tíma svo kröftug. Í sýningunni Hamskipti er list Gerðar sett í sögulegt samhengi og verkin skoðuð út frá stefnum og straumum í samtíma hennar. Sjónum er einkum beint að örum breytingum í listsköpun Gerðar, þróun hennar úr hefðbundnu fígúratívu myndmáli yfir í hið óhlutbundna, hvernig hún fer úr steini í leir í járn og brons. Úr mjög formfastri myndbyggingu í svífandi léttleika og yfir í lífrænni og náttúrulegri form. Svo mörg voru orð… en list Gerðar er tímalaus. Sýningin er tímalaus, einstaklega gleðjandi.

Frá sýningunni, Hamskipti – Listsköpun Gerðar Helgadóttur í Gerðarsafni í Kópavogi

Kópavogur 13/08/2024 : A7R IV, A7CR – FE 1.4/35mm GM, FE 1.8/20mm G
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson