Alveg milljón
Suðaustan við Melrakkasléttuna er Langanes, milli Þistilfjarðar, og Bakkafjarðar. Annes í Norður-Þingeyjarsýslu sem tegir sig rúma 40 kílómetra til norðausturs út í Norður-Íshafið. Hrjóstrugt en ákaflega sumarfallegt, þar sem örugglega milljón fuglar fegra himinninn, en ekkert mannfólk hefur þar fasta búsetu í dag. Þarna við ysta haf, var alltaf fámennt, byggðin lagðist af á nesinu fyrir rúmri hálfri öld, en þorpið Þórshöfn, í botni Þistilfjarðar er enn spell lifandi, fallegt þorp með hátt í 400 íbúa. En það eru fáir staðir á Íslandi sem er eins gefandi heim að sækja eins og Langanes. Í fyrsta lagi, er þarna einstakt fuglalíf yfir sumartímann. Í öðru lagi, eru fáir staðir þar sem maður getur verið einn og ótruflaður í einstakri náttúru, og þarna norður á Langanesi. Í þriðja lagi frá því um miðjan maí og fram lok júlí, er enginn staður í lýðveldinu þar sem miðnætursólin er eins falleg, nema ef til vill á Rauðanúpi, rétt, norðar á Melrakkasléttunni.







Langanes 27/05/2025 – A7R III, RX1R II : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm ZMyndatextar :