Gæsagangur við Reykjavíkurtjörn
Gæsagangur við Reykjavíkurtjörn

Hjólandi, gangandi, brosandi


Í Reykjavík eru hjóla- göngustígar orðnir rétt rúmlega 50 km langir. Á höfuðborgarsvæðinu öllu eru þeir vel á annað hundrað kílómetrar. Á síðustu árum hefur orðið bylting, mikil aukning á að fólk fari til og frá vinnu, á reiðhjólum eða gangandi. Margir stíganna, liggja á eða við fertugustu náttúruperlur höfuðborgarsvæðisins, sem er vel. Uppbyggingin heldur áfram, næsta stóra verkefni er hjólabrú yfir Fossvoginn, tengja Reykjavík og Kársnesið í Kópavogi saman. Icelandic Times / Land & Saga heimsótti nokkra hjóla- og göngustíga nú í lok vetrar, til að taka púls á stemmingunni, mynda gangandi, brosandi, myndandi og hjólandi mannlífið.

 

Myndataka við innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn
Göngubrú milli Hörpu og Landsbankans, Utanríkisráðuneytisins sem er í bakgrunni
Gengið upp á Þúfuna, við Brim í Reykjavíkurhöfn, Hallgrímskirkja í bakgrunni
Göngustígur á Seltjarnarnesi
Hjólað í Fossvogi
Horft af Sólfarinu, Esjan í bakgrunni, frá göngustígnum við Sæbraut sem tengir miðbæinn við Laugarnes
Brúin yfir Njarðargötu / Hringbraut, nýju Landspítalinn í bakgrunni
Gæsagangur við Reykjavíkurtjörn

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson