Líklega er ekkert hverfi Reykjavíkur sem hefur tekið eins miklum breytingum á síðustu 80 árum og Ártúnshöfði / Bíldshöfði. Höfðinn sem liggur austan við árósa Elliðaár og sunnan við Grafarvog, lá langt frá miðborg Reykjavíkur þegar breski herinn reisti þarna herskálabyggð og fjarskiptamiðstöð, og kom þarna fyrir loftvarnarbyssum í seinni heimstyrjöldinni. Eftir að styrjöldinni lauk, byggðist þarna upp iðnaður, í tengslum við malar- og grjótnám, og síðan uppsetningu sorpeyðingarstöðvar og malbikunarstöðvar fyrir höfuðborgina í kringum 1960. Tuttugu árum síðar, byggist hverfið upp, með bifreiðaverkstæðum, bílasölum, og öðrum smáiðnaði. Fyrir tíu árum, um 2015, var farið að ræða um uppbyggingu íbúðarhverfis á Ártúnshöfða í tengslum við fyrsta áfanga Borgarlínu. Í dag er verið að rífa stóran hluta af byggingum á Ártúnshöfða og byggja þúsundir íbúða í þessu hverfi, sem er í dag, einstaklega sérkennileg blanda af bílaverkstæðum, steypustöðvum, bílasölum og nýjum íbúðarhúsum sem byrjað var að byggja árið 2025, og verður haldið áfram næstu ár, jafnvel áratug. Icelandic Times / Land & Saga skrapp upp á Ártúnshöfða, að skrá, þetta hverfi sem er í mikilli endurnýjun, rúmum áttatíu árum eftir að síðustu hermennirnir kvöddu Ártúnshöfðann.










Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 14/04/2026 : GFX 100RF, GFX 100II – 4.0/35mm, GF 2.0/110mm



