Litróf hveranna

Litagleði jarðhitans

Háhitasvæði á Íslandi eru um tuttugu, á afmörkuðum svæðum innan gosbeltanna, og eru tengd megineldstöðvum og sprungukerfum. Til að teljast sem háhitasvæði þarf hitinn á 1 km dýpi vera yfir 200°C. Það fer ekki milli mála þegar maður er staddur á háhitasvæði, því á yfirborði jarðar má þar finna gufuhveri, leirhveri, vatnshveri og litríka brennistenshveri. Stærsta háhitasvæði landsins er við Torfajökul, síðan eru stórt svæði við Hengil, rétt austan við Reykjavík, þar hefur orkan verið beisluð með tveimur stórum jarðvarmavirkjunum. Eins er á Reykjanesi, stór og öflug háhitasvæði, sem og Kröflusvæðið, við Mývatn, fyrir norðan. Í lögum um náttúruvernd, njóta jarðhitasvæði sérstakrar verndar.Hér beinum við sjónum okkar að fegurðinni, litunum sem má finna í öllum þessum hverum, sem gera íslenska náttúru svo einstaka, á heimsvísu. 

Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna
Litróf hveranna

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland : 29/03/2026 : A7R IV, RX1R II – 2.0/35mm Z, FE 1.4/24mm GM, FE 2.8/100mm GM