Það er hægt að hafa skoðanir á öllu. Persónulega finnst mér myndhöggvarinn Ásmundur Sveinsson (1893-1982 ) fanga þjóðarsálina, okkur sem þjóð, ansi vel. Hann var tröll sem listamaður, og skapaði bæði tröll, fagurt fólk og fígúrur á sínum langa ferli. Á Listasafni Reykjavíkur, Ásmundarsafni eru nú tvær sýningar, Eftirstöðvar þar eru sýnd verk sex listamanna sem fengu úthlutað vinnustofu á safninu en í þessu sérstaka verkefni Undraland- verk í vinnslu sem stóð yfir veturinn 2025-2026. Þá fengu sex listamenn tækifæri til að vinna í nánum tengslum við rými safnsins, anda Ásmundar Sveinssonar og daglega starfsemi þess. Á sýningunni eru verk eftir: Unnar Örn, Ástu Fanney Sigurðardóttur, Amöndu Riffo, Halldór Ásgeirsson, Söru Riel og Finn Arnar Arnarsson. Síðan er stóra sýningin í safninu, Undraland, þar sem við hverfum aftur í tímann, og inn á vinnustofu Ásmundar Sveinssonar, sem skapaði tröllslega fegurð.











Reykjavík : 13/04/2026 : GFX 100RF, 4.0/35mm
Ljósmyndir og text: Páll Stefánsson



