Auðvitað hugsaði ég, birtan í myndum hennar er frá Melrakkasléttu, norður í Norður-Þingeyjarsýslu þar sem er fallegasta ljósið. En Guðrún Kristjánsdóttir (f:1950) er með sýninguna Leiðir, í vestursal Kjarvalsstaða, Listasafns Reykjavíkur, þar sem hún færir okkur birtu, víðáttu náttúrunnar nær okkur. Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist, þar sem náttúran, birtan, veðrið verður eitt. Líka, kyrrð og kraftur, eins og fyrir norðan. Enda á hún ættir að rekja nánast undir himskautsbauginn, norður á Melrakkasléttu. Henni tekst á þessari sýningu sem spannar áratuga langan feril, að fanga bláma norðursins, og agnarsmáa regndropa á stóran hátt.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 06/03/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm



