Pólverjar eru einstaklega gott fólk, setja sterkan svip á íslenskt samfélag í dag. Þeir eru þriðjungur af öllum innflytjendum sem búa hér í þessu 400 þúsund manna samfélagi. Innflytjendur, eru 75 þúsund, þar af eru Pólverjar eru 25 þúsund. Í Hafnarborg í Hafnarfirði eru nú tvær sýningar í gangi, önnur, Heiðvirðir einstaklingar, þar rýna listamennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury í góð og langvarandi samskipti Póllands og Íslands. Því frá miðri síðustu öld streymdu frá Póllandi, Prince Póló, súkkulaðikexið sem er þjóðarréttur Íslendinga, traktorar og kol. Til Íslands. Í vöruskiptum seldum við þeim lopa og síld í staðinn. Hin sýningin er ramm íslensk, Bergmál, þar sem Ragna Fróða býður okkur í heimsókn. Heimsókn í framandi heim forma, mynstra og áferða. Hér erum við komin heim, í eitthvað svo fallegt og íslenskt, og samt svo alþjóðlegt… jafnvel pakistanst, perúskt eða pólskt.









Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Hafnarfjörður : 14/03/2026 : GFX 100 II, GFX100RF – GF 4.0/35mm, GF 1.7/55mm
2762 Hafnarborg Hafnarfirði
18



