Vestur á firði

Það má segja að Íslandi sé skipt í fimm landshluta, Vesturland. Norðurland, Austurland, Suðurland og síðan Vestfirði, sem er heill heimur, kjálki á norðvesturhorninu. Stór, og með stórbrotna náttúru, einstakur landshluti, sem er tæp 8% af flatarmáli Íslands. Vestfirðir eru 8.842 km að stærð og íbúarnir, eru rétt rúmlega sjö þúsund, eða 1.8% af íbúafjölda lýðveldisins. Fyrir hundrað árum voru þeir helmingi fleiri, og tæplega 15% af íbúafjölda landsins. Þrátt fyrir mikla náttúrufegurð, eru Vestfirðir harðbýlt svæði, lítið um undirlendi, samgöngur erfiðar. En það er enginn landshluti sem er betri heim að sækja, ef þig langar að sjá Ísland, eins og það var… og njóta náttúrunnar einn með þér og þínum. Upplifa Barðaströndina, og Látrabjarg, vestasta hluta heimsálfunnar. Njóta kyrrðarinnar norður á Hornströndum eða Ströndum, þar sem stærstu fuglabjörg á norðurhveli kyssa Íshafið. Eða horfa á Vestra, eitt besta knattspyrnulið landsins vinna andstæðinga á Ísafirði, höfuðstað Vestfjarða. Ísafjörður er einmitt frábær staður, til að nota sem dvalarstað, til að sjá og skoða og sjá Vestfirði… sumar sem vetur. Svona sæmilega stutt í í allar áttir. 

Vegurinn í Reykjafirði, norður til Trékyllisvíkur á Stöndum
Patreksfjörður, næst stærsti bær kjálkans, við samnefndan fjörð
Dynjandi einn fallegast foss landsins í Arnarfirði
Á Galdrasafninu í Hólmavík922 1 Vegurinn í Reykjafirði, norður til Trékyllisvíkur á Stöndum
Fé á beit á Barðaströnd
Bíldudalur í Arnarfirði, en þar er mesta blíðuveður á Íslandi
Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar Forseta

Vestfirðir  22/05/2025 – A7C R, A7R IV, RX1R II : FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z