Skerjafjörður er sérstakt og skemmtilegt hverfi við austur- vesturflugbraut Reykjavíkurflugvallar. Þarna eru bæði gömul og ný einbýli, sem gerir hverfið svo einstakt. Nú eru áform um að reisa 700 íbúðir í fjölbýli, austast á svæðinu, þar sem Shell (Skeljungur) rak olíubirgðastöð frá 1927 til 1996, þegar Reykjavíkurborg keypti landið, og stöðin var lögð niður. Það var árið 1922, sem Eggert Claessen bankastjóri Íslandsbanka, kaupir jörðina Skildinganes, og byrjar að búta niður í byggingalóðir. Þegar Skildiganesþorpið eins og það var kallað í fyrstu, er sameinað Reykjavík, frá Seltjarnarnesi árið 1932, er búið að byggja 86 hús á svæðinu. Við sameiningu dró úr uppbyggingu á svæðinu, og með hernámi Breta árið 1940, og gerð Reykjavíkurflugvallar urðu miklar breytingar á byggðinni. Mörg hús á svæðinu þurftu að víkja, og byggðin í raun klofin í tvennt. Árið 1960, er ákveðið að þétta byggðina í Skerjafirði, og gert nýtt skipulag þar sem stórar og dýrar einkalóðir, voru settar á sölu. Hverfið var nær fullbyggt um síðust aldamót. Icelandic Times / Land & Saga gekk um þetta fallega hverfi, Skerjafjörð við Skerjafjörð, í Vesturbæ Reykjavíkur.












Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 28/06/2025 – RX1R II : 2.0/35mm Z



