Kyrðarstund í kirkjugarði

Á Íslandi eru 255 kirkjugarðar; stærstir eru kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma, síðan í Hafnarfirði og á Akureyri. Flestir kirkjugarðar eru við litlar sveitakirkjur landsins, Eigendur kirkjugarða landsins eru allir landsmenn, án tillits hvort þeir séu innan þjóðkirkjunnar eða ekki. Þegar þjóðin tekur kristni árið 1000, spruttu upp kirkjur um allt land. Með kristni komu nýjar hefðir, og í stað kumla voru látnir einstaklingar grafnir í kirkjugarði í námunda við kirkjur. Í fyrstu voru allir kirkjugarðar hringlaga, í byrjun 20. aldar voru nær allir kirkjugarðar orðnir ferhyrndir. Það er fátt, á ferð um landið, sem færir manni meiri ró, en að stoppa við fallega sveitakirkju og skoða kirkjugarðinn. Þarna mætist náttúran, sagan og kyrrðin. 

Hólavallagaður, í Reykjavík, einstakur kirkjugarður sem var friðlýstur í júní
Kirkjugarðurinn og kirkjan á Stokkseyri, Árnessýslu
Sólland nýr duftgarður í Öskjuhlíð
Kirkjan og kirkjugarðurinn, Gröf, Vestur-Skaftafellssýslu
Víðimýrarkirkja, og kirkjugarðurinn Skagafirði
Kirkjan og kirkjugarðurinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaðar Jóns Sigurðssonar Forseta
Kirkjugarðurinn í Hofi í Öræfasveit, Austur-Skaftafellssýslu

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland 23/06/2025 – RX1R II, A7C R : 2.0/35mm Z, FE 1.8/20mm G, FE 2.8/100mm GM