Höfuðborg Strandamanna

Hólmavík liggur við Steingrímsfjörð, á miðjum Ströndum á austanverðum Vestfjörðum, og er verslunar- og þjónustumiðstöð fyrir Strandasýslu. Upphaf Hólmavíkur má rekja til ársins 1890 þegar bærinn fær verslunarréttindi, og síðan hefst útgerð eftir að tvær bryggjur eru byggðar árið 1900. Bærinn vex og dafnar næstu hálfa öldina, en eftir 1950 byrjar fólki að fækka, og í dag búa í bænum 295 manns, og í Strandasýslu allri, rétt um 600 einstaklingar. Í dag er ferðaþjónusta öflug á svæðinu, ásamt þjónustu við bæði heimamenn og ferðamenn, enda er Hólmavík, vel í sveit sett, akkúrat hálfa leið, milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Frá höfuðborginni er þriggja tíma akstur, til Hólmavíkur. Frá Hólmavík er rúmur klukkutími norður í Árneshrepp, fámennasta sveitarfélag landsins, en einstakt af sögu og náttúrufegurð. Það er gefandi að ganga um Hólmavík, skoða söfn, borða góðan mat, og fara nokkur ár aftur í tímann, eins og Ísland er eða var fyrir nokkrum áratugum. 

Hólmavík
Nýri hluti Hólmavíkur
Miðbærinn
Hólmavíkurkirkja, horft yfir höfnina, yfir Húnaflóa að Vatnsnesi
Hafnargata, aðalgata Hólmavíkur
Hólmavíkurkirkja á Brennuhól í miðjum bænum. Hér er fólk að fá sér nesti við kirkjuna, sem var vígð árið 1968
Galdrasafnið á Hólmavík
Garður í Hólmavík
Frá Hólmavík
Gamall beitiskúr við Hólmavíkurhöfn
Bátar við bryggjuna
Höfnin í Hólmavík
Hólmavíkurhöfn
Miðbær Hólmavíkur
Mjög gott tjaldstæði er í Hólmavík

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Hólmavík 07/07/2025 – RX1R II, A7C R : 2.0/35mm Z, FE 2.8/100mm GM