Sprengisandsleið (F26) er fjallvegur, og forn þjóðleið milli suður- og norðurlands, frá Hrauneyjum í suðri að Mýri í Bárðardal í norðri. Sjálfur Sprengisandur er eiginlega eyðimörk, örfoka háslétta á miðhálendi landsins, milli jökla, Hofsjökuls í vestri og Vatnajökuls í austri, með Tungnafellsjökul á milli. Sprengisandsvegur liggur vestan við hann. Ferðafélag Íslands byggði sæluhús í Nýjadal við rætur jökulsins árið 1967, fallegur staður til að á, eða gista, á miðju hálendinu. Lengsta fljót landsins Þjórsá á upptök sín á Sprengisandi, og þaðan rennur áin 230 km /140 mi til sjávar. Í ánni eru sjö vatnsaflsvirkjanir í eigu Landsvirkjunar, og sú áttunda á teikniborðinu. Þrátt fyrir að Sprengisandsleið sé malarvegur, aðeins fær fjórhjóladrifsbílum, og aðeins yfir sumarmánuðina, er mikil umferð gangandi, hjólandi og akandi manna að upplifa þessa sérstöku óbyggðu auðn á miðju miðhálendinu.







Ljósmyndir/Texti : Páll StefánssonSprengisandur 24/07/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/85mm GM, 2.0/35mm Z



