Auðvitað Vestmannaeyjar

Á hverju ári velur stórblaðið New York Times ítarlegan lista um 52 áfangastaði, sem þeir mæla með. Vestmannaeyjar voru á þessum lista, ekki slæmt að vera í hópi einstakra staða eins og Salar de Uyni í Bólivíu, Maui, flottasta eyjan í Hawaii eyjaklasanum, og Hurghada við Rauðahafið í Egyptalandi, og auðvitað París. Vestmannaeyjar, eru eyjaklasi 15 eyja, og er Heimaey lang lang stærst og sú eina sem er í byggð, en rúmlega 4.500 búa í bænum, sem er sá 13 stærsti á landinu, og jafnframt mesti útgerðarbær landsins. Enda er höfnin bæði hjarta, sál og miðpunktur bæjarins. Fljótlega eftir landnám er komin byggð í Heimaey, og hefur verið byggð þar síðan landnámsmaðurinn Herjólfur Bárðarson nam eyjarnar, rétt fyrir árið þúsund. Íbúum fjölgaði, enda fengsælustu fiskimið landsins við eyjarnar, en fækkaði um helming árið 1627, þegar þrjú hundruð manns voru numin brott í Tyrkjaráninu árið 1627, og síðan seld á þrælamarkaði í Algeirsborg. Í janúar 1973, voru íbúar eyjanna 5.300 þegar eldgos hófst rétt austan við byggðina, þann 23. janúar. Allir íbúar voru fluttir upp á land, og fengu ekki að snúa til baka, fyrr en gosinu lauk, rúmu hálfu ári seinna. Safnið Eldheimar, frábært safn í bænum, kynnir okkur fyrir sögu gossins, og einnig gosinu í Surtsey rétt sunnan við Heimaey, áratug áður. Vestmanneyjar eru mjög ungar, elstu eyjarnar eru um 12 þúsund ára gamlar, og hafa allar myndast í eldgosum, en eyjarnar liggja á umfangsmiklu eldgosabelti sem er 38 km langt, og 30 km breitt, með um 75 eldstöðvum. Icelandic Times, Land & Saga skrapp til Vestmannaeyja, enda topp staður, í alla staði. Það segir alla vega New York Times. 

Álsey
Horft yfir miðbæinn
Drangar sunnan við Eiðið
Ein stærsta landeldisstöð á landinu í byggingu. Þegar hún er tilbúin er áætlað að framleiða 32.000 tonn af laxi árlega
Stafakirkjan í Vestmannaeyjum
Vestmanneyjahöfn, Heimaklettur í bakgrunni
 Landakirkja, byggð árið 1774, þriðja elsta steinkirkja Íslands
Eldheimar
Eitt af 300 húsum sem lentu undir hraun og vikur í eldgosinu árið 1973, en Eldheimar, eru byggðir yfir húsið
í miðbænum
Klettsnef í hafnarkjaftinum

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Vestmannaeyjar 21/10/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z