Vatn & vetur

Ísland breytist mikið þegar vetur gengur í garð. Landið skiptir um lit, árnar verða vatnsminni, stöðvötn frjósa. En stöðuvötn þekja 2.757 km² af yfirborði Íslands eða sem samsvarar 2,68% af flatarmáli landsins. Til að setja stærðina í samhengi, þekja jöklarnir 11.922 km² eða 11,6% af flatarmáli Íslands, lang stærstur er Vatnajökull, sem er stærsti jökull í heimi utan heimskautasvæðanna. Stærst vatna, eru Þórisvatn og Þingvallavatn, en stærsta hluta ársins hefur Þingvallavatn vinningin. Þórisvatn er stærra á haustin og fram á vetur, það fer eftir því hve mikið Landsvirkjun nær að safna í það fyrir veturinn. Síðan má ekki gleyma síbreytilegri strandlengjunni, þar eru endalaus tækifæri að sjá landið og litina breytast með birtunni.

Birtan breytist í Önundarfirði
Í botni Öxarfjarðar
Holtslón, og Vestmannaeyjar í bakgrunni
Grýlukerti við Skógafoss
Við Mývatn
Lón í Lónssveit
Bakkar Ölfusár, vatnsmestu á landsins, sem að hluta kemur úr Þingvallavatni

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Ísland : 07/12/2025 – A7R IV, A7C R : FE 2.8/100mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/24mm GM