Árið 1939 hóf Mjólkursamlag KEA, mjólkurvinnslu í nýbyggðu húsi í gilinu á Akureyri, hannað af Þóri Baldvinssyni í Bauhaus stíl. Þar var mjólkurvinnsla í húsinu hátt í hálf öld. Listasafnið á Akureyri hefur síðan verið í húsinu frá stofnun, árið 1993. Listasafnið á Akureyri er stærsta listasafn landsins, fyrir utan höfuðborgarsvæðið, og hefur í gegnum árin fest sig í sessi sem eitt besta og öflugasta listasafn landsins. Það er alltaf gaman að heimsækja safnið, eins og Icelandic Times / Land & Saga komast að. Það eru átta sýningar í gangi í safninu, ólíkar og heillandi. JÓHANNES S. KJARVAL, UNDIR BERUM HIMNI, Samsýningin, VIÐBRAGÐ, JAMES MERRY, með sýninguna NODENS, SULIS & TARANIS, ÝMIR GRÖNVOLD, með MILLI FJALLS OG FJÖRU, VALIN VERK FYRIR SKÖPUN OG FRÆÐSLU, MARGSKONAR I-II, KATRÍN INGA JÓNSDÓTTIR HJÖRDÍSARDÓTTIR, með skúlptúrinn SJÁLFSÁSTARVÍRUS – MINNISVARÐI #3, BJÖRK VIGGÓSDÓTTIR með HREYFING FYRIR SJÓN / MOVEMENT FOR VISION og GUÐMUNDUR ÁRMANN með AÐFLÆÐI / INFLUX. Allt áhugaverðar sýningar í höfuðborg hins bjarta norðurs.












Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Akureyri : 05/02/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm



