Hraun & aftur hraun

Á örskömmum tíma, eða frá ísöld sem lauk fyrir 11.500 árum, er flatarmál þeirra hrauna sem hafa runnið síðan á Íslandi yfir 11.000 km2, eða tæp 11% af flatarmáli landsins. Stærstu gosin í nútíma urðu fyrir 9000 árum, þegar Þjórsárhraun og Bárðardalshraun runnu, en rúmmál Þjórsárhrauns er um 25 km3, að stærð, en það rann 130 km leið frá Veiðivötnum, norðan Heklu og til sjávar við Stokkseyri, Eyrarbakka. Önnur stór hraun í nútíma eru Eldhraun, árið 934, Skaftáreldahraun árið 1783. Á síðustu hundrað árum er Holuhraun norðan Vatnajökuls stærst, 84 km2, og um að 1.5 km3 að stærð. Stærstu svæðið, sem eru þakin hrauni, er norðan Vatnajökuls, og teigir sig alveg norður á Melrakkasléttu. Vestur-Skaftafellssýsla og Rangárvallasýsla á Suðurlandi, Snæfellsnes og auðvitað Reykjanes, sem má segja að sé eitt stórt hraun, úr mörgum gosum. Og þar… eru líka nýjustu hraunin, en mikil eldsumbrot hafa verið á skaganum á umliðnum árum, og sér ekki fyrir enda á þeirri hrinu nýrra hrauna.     

Hraun í Veiðivötnum
Hraun við Herklu
Holuhraun
Tröll í Ódáðahrauni

 Í Þjóðgarðinum Þingvöllum
 Í Þjóðgarðinum Þingvöllum
 Í Þjóðgarðinum Þingvöllum
Horft inn í gýg

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland  : 17/03/2026 : A7C R, A7R IV, RX1R II – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/24mm GM

3