Verk úr ólíkum tímabilum eru dregin saman, á sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar, Sjóndeldarhringur á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. Sýningin er ekki yfirlit heldur sem áframhaldandi samtal. Eldri verk tengjast nýrri verkum þar sem myndræn hugmynd þróast áfram og fær nýtt samhengi. Í sumum tilvikum eru eldri verk tekin upp að nýju og unnin áfram, þannig að mörk milli fortíðar og nútíðar verða óljós. ,,Það tók mig þrjár vikur að hengja upp þessa sýningu”. Segir Helgi. Enda fyllir sýningin salinn, á einstakan hátt. Helgi kann til verka, það er helgistund að koma til að njóta. Því…í verkunum er leitast við að hægja á framvindu og festa augnablik, á sama tíma og þau vísa til stöðugrar breytingar. Að sjá sjóndeildarhringinn. Eða… hvað.










Sjóndeildarhringur

Myndir & texti Páll Stefánsson



