Fótbolti Kmattspyrna

Af knattspyrnu

Af knattspyrnu

Fyrsti landsleikur Íslands í knattspyrnu fór fram á Melavellinum 17. júlí 1946, og tapaðist 0-3. Ísland situr nú í sæti 60 á styrkleikalista FIFA (Alþjóða knattspyrnusambandsins) en komst hæst, akkúrat fyrir fjórum árum, 2018, þegar íslenska landsliðið var í 18 sæti. Íslenska kvennalandsliðið er nú í 16 sæti, tveimur sætum hærra en karlalandsliðið hefur nokkurn tíma náð. Stærsti sigur íslenska karla landsliðsins var í september 1985 gegn frændum vorum Færeyingum, 9-0 í Reykjavík. Stærsta tap liðsins var í ágúst 1967, þegar Ísland tapaði 14-2 gegn dönum í Kaupmannahöfn. Markahæstu menn frá upphafi eru Kolbeinn Sigþórsson og Eiður Guðjohnsen, með 26 mörk hvor. Leikjahæstur er Birkir Bjarnason með 106 landsleiki, og enn að.

 

Það var heldur kuldalegt í morgun á Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi Íslands, sem tekur 9.800 í sæti. Það eru upp hugmyndir að byggja nýjan leikvang, enda er Laugardalsvöllur á undanþágu hjá FIFA. 

 

Akureyringurinn Birkir Bjarnason er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, hér í leik gegn Úkraínu á Laugardalsvelli fyrir fáeinum árum. Birkir sem er 33 ára, spilar nú með Adana Demirspor í Tyrknesku Süper-deildinni.  
Íslenskir áhorfendur þykja með þeim bestu í heiminum. Slógu rækilega í gegn á Evrópumótinu í knattspyrnu 2016, og á HM 2018 með víkingaklappinu. Ísland komst ekki á HM í Katar, sem verður haldið í desember í ár. 

Reykjavík 22/03/2022 10:10 : A7C / 1DX : 2.8/21mm Z – EF 4.0/500mm

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson