Banjó-leikarinn Morgan O’Kane

heldur tónleika á KEX Hostel 11. Ágúst
Einstakur listamaður með einstaka sögu á bakinu og lag í sjónvarpsþætti

Morgan O‘Kane er sérstæður banjó-spilari og einstakur listamaður sem ferðast hefur um allan heim með banjóið sitt í farteskinu. Morgan er frá Virginia-fylki í Bandaríkjunum en hann hefur haldið til í Brooklyn í New York undanfarin ár þegar hann er ekki á tónleikaferðum.

Morgan fer ekki troðnar slóðir á ferðalögum sínum og í byrjun ferils síns ferðaðist hann með því að hoppa um borð í flutningalestir eins og tíðkaðist í Borgarastríðinu og á tímum Heimskreppunnar í Bandaríkjunum. Morgan er mikill hugsjónamaður syngur og semur gjarnan um lífið í kringum hann.

Morgan hefur gefið fjölda platna, hann hefur spilað á stórum og smáum tónleikastöðum og vílar ekki fyrir sér að troða upp á götum úti eða í neðrajarðarlestakerfum heimsins. Nú nýverið voru teknir til sýninga sjónvarpsþátturinn Outsiders og er lag Morgans „Taker‘s Creed“ upphafslag þáttanna. Þættirnir eru til sýninga á Stöð 2 og fjalla um jaðarhóp sem lifir samkvæmt eigin reglum í Appalachia-fjöllunum.

Tónleikarnir eru 11. ágúst og hefjast stundvíslega klukkan 21:00 og er frítt inn.

Fólk er kvatt til að mæta stundvíslega.

https://morganokanemusic.com/

https://www.kexland.is/kex-event-calendar/idealist-and-banjo-player-extraordinaire-morgan-o-kane-visits-kex-hostel-again

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0