Bjart framundan

Bjart framundan

Það var einstaklega fallegur morgun í Reykjavík, snjókoma í stillu, sem er auðvitað afar sjaldgæft. Á morgun eru jafndægur að vori, og spáin fyrir næstu daga eru hlýindi, eftir einn erfiðasta vetur í manna minnum á Íslandi. Óvenjulegt veðurfar, stanslaust óveður og einstaklega mikil snjókoma um allt land, vegir stanslaust lokaðir. Þegar maður lítur til baka, þá eru auðvitað ekki fjórar árstíðir á Íslandi. Þær eru tvær, sú dimma og sú bjarta. Á morgun byrjar sú bjarta, enda  mikil hlýindi í kortunum.

Finnskir ferðamenn á Þúfu eftir Ólöfu Nordal, út á Granda, hjá Brim
Það voru óvenju margir ferðamenn að ganga Sæbrautina í snjókomunni í morgun. Bílaumferð engin. 
Þúfa séð frá innsiglingunni í Reykjavíkurhöfn við Hörpu.

Reykjavík 19/02/2022 – 10:14 -12:22 :  RX1R II – A7R IV :  2.0/35mm Z – FE 1.8/135mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson