Á þessum árstíma hellist myrkrið yfir norðurhvelið. Dagarnir eru stuttir, aðeins fimm og hálfur klukkutími af sólarljósi í Reykjavík nú í lok nóvember. Sólarupprás er 10:28 og sólsetur nokkrum mínútum fyrir klukkan fjögur síðdegis. En borgin er björt, vel upplýst, það er notalegt að rölta um miðbæinn í svartasta skammdeginu, stemningin er kósý. Icelandic Times / Land & Saga hélt niður í miðbæ, til að gefa lesendum sínum smá nasasjón af stemmingunni í höfuðborginni. Já veturinn, er ekki síðri tími til að sækja miðbæinn heim, hvort sem maður býr í Brussel, Bolton, Borås eða í Baltimore. Eða bara upp í Breiðholti.
Reykjavík 24/11/2022 : A7R IV : FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson