Ljósmynd: Sigfús Már Pétursson

Friðarsúlan tendruð á vetrarsólstöðum

Í dag er síðasti dagurinn sem Friðarsúla Yoko Ono í Viðey logar fram að vetrarsólstöðum 21. desember. Listaverkið tileinkaði Yoko Ono eiginmanni sínum, tónlistarmanninum John Lennon. Friðarsúlan er tendruð á fæðingardegi hans, 9. október ár hvert og slökkt á henni 8. desember, en þá minnumst við Johns Lennon, sem féll frá á þessum degi fyrir 40 árum árið 1980. 

Venju samkvæmt verður Friðarsúlan tendruð að nýju, mánudaginn 21. desember á vetrarsólstöðum. Í ljósi aðstæðna í heiminum hefur verið ákveðið að í stað þess að slökkva á geislum súlunnar þegar nýtt ár hefur gengið í garð lýsi Friðarsúlan upp skammdegið allt fram á jafndægur á vori í mars á næsta ári.

Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu hér.