Það voru margir, ferðamenn og bæjarbúar að njóta kyrrðarinnar á ísi lagðri Tjörninni í dag. Spáð er vitlausu veðri á morgun, engu ferðaveðri.
Gamlársdagur
Eins og alltaf er róleg stemning í Reykjavík á gamlársdag. Flestar verslanir og veitingahús eru lokuð. Íslendingar bíða eftir kvöldinu, borða góðan mat í faðmi fjölskyldu og vina, horfa á Áramótaskaup ríkissjónvarpsins og skjóta síðan upp flugeldum um miðnætti. Mikill fjöldi erlendra ferðamanna kemur til Íslands um áramótin, til að sjá og upplifa stemninguna, sem er einstök. Icelandic Times, sendir öllum hugheilar áramótakveðjur, GLEÐILEGT ÁR.
Reykjavík 31/12/2021 12:56/14:28 – A7C : FE 2.5/40mm G Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson