Hákarlinn og helgidómurinn

Fjöldinn allur leggur leið sína í Bjarnarhöfn og það árið um kring. Þau Hrefna og Hildibrandur hafa búið svo um, að kirkjan er fastur viðkomustaður fólks í bland við minjasafnið á staðnum, harðfiskinn og hákarlinn.

Sumarið 2006, 27. ágúst, var 150 ára afmæli kirkjunnar fagnað með vísitasíu biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar. Biskup predikaði, Gunnar Eiríkur Hauksson, prófastur í Stykkishólmi, þjónaði fyrir altari og séra Gísli Kolbeins og séra Hjálmar Jónsson lásu ritningargreinar. Það er auðfundið að þeim Hrefnu og Hildibrandi þykir gott um þennan atburð og að vitna til þeirra orða biskups, að öll umgengni við kirkjuna yzt sem innst beri vitni um alúð og umhyggju kirkjubænda.

Author

  • Editorial

    Icelandic Times Magazine - the only magazine in Iceland published in English, German, French and now Chinese. Icelandic Times Magazine's sister publication Land og Saga is published in Icelandic.

    View all posts
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0