Ef spáin gengur eftir, verður desember mánuður sá kaldasti á Íslandi í hálfa öld. Náttúran er öfgafull, því síðastliðin nóvember mánuður var sá hlýjasti á landinu síðan mælingar hófust. Spáin er ekki góð fyrir næstu daga, já alveg fram á næsta ár. Ferðafólk, farið því varlega næstu daga. Fylgist vel með veðurspá og færð á vegum, því Vegagerðin í samvinnu við Lögreglu og Björgunarsveitir er, og mun loka stórum köflum á Hringvegi 1, og öðrum stofnleiðum í dag, á morgun og næstu daga. Farið því varlega. Komið heil heim, það er það sem skiptir öllu máli. Undanfarna sólahringa hafa einmitt Björgunarsveitir, sérstaklega á suðurlandi bjargað hundruð ferðamanna sem hafa ekki áttað sig á því að vetur konungur getur verið ansi grimmur um hávetur á Íslandi.
A7R III, A7C : FE 2.8/50mm, FE 2.8/100mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson