Berufjörður, Djúpivogur

Hlýindi

Frá því nákvæmar veðurmælingar hófust á Íslandi, í Stykkishólmi árið 1845, hefur hitastigið aðeins sex sinnum farið yfir 30°C. Mesti hiti sem mælst hefur á Íslandi var þann 22. júní 1939, 30,5°C, fyrir áttatíu og sex árum.  Það var á Teigarhorni við Djúpavog, austur á fjörðum. Mestur hiti sem mælst hefur í Reykjavík, var 24.3°C í júlí árið 1976. Hitinn í höfuðborginni á síðasta ári (2024) fór aldrei yfir átján gráður. Í ár hefur hitinn farið nokkrum sinnum yfir tuttugu gráðurnar, í Reykjavík. Það er er bara eitt land í Evrópu, Færeyjar sem hefur lægra hitamet en Ísland, en hitametið er, 25.4°C á Vagar alþjóðaflugvellinum,  í júlí 2003. Svíar og Finnar deila norrænu hitameti, en þar hefur hitinn náð hæstu hæðum, í tæplega 38°C. Hæsti hiti í Evrópu, hefur mælst í Pó dalnum á Ítalíu 48.8° gráður. Grikkland, Andalúsia á suður Spáni, Makedónía og Búlgaría fylgja fast á eftir, með rétt rúmlega 45°C stiga hitamet. Írland er afturnóti nær í Íslandi, en hæsti mældur hiti þar er 33.3°C, meðan hæsti hitinn á England, rétt austan er 40.3°C. Allavega lofar sumarið hér góðu. Gott vor, og sumarbyrjun á Íslandi. 

Sumargróður við læk

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Sumarleikur
Brúará um sumarnótt
Hrísey

Kaldakinn Suður Þingeyjarsýsla
Sumarleikur Sumar við tjörn, Hraun Sumar við tjörn, Hraun á Skaga
Teigarhorn, þar sem mesti hiti hefur mælst í lýðveldinu Berufjörður, Djúpivogur

14/06/2025 – RX1R II, A7C R : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z