Frá stofnun lýðveldisins fyrir áttatíu og einu ári, hefur þjóðin átt bæði gott og gæfuríkt alþjóðlegt samstarf. Ísland fær inngöngu í UN, Sameinuðu þjóðirnar ári eftir stofnun samtakanna í nóvember 1946. Áður hafði Ísland gerst aðili að sex alþjóðastofnunum, sem síðar urðu sérstofnanir samtakanna: (FAO) Matvæla og landbúnaðarstofnuninni, (IMF) Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, (IBRD) Alþjóðabankanum, (ICAO) Alþjóðaflugmálastofnuninni, (ILO) Alþjóðavinnumálastofnunni, og (UNESCO) Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna.
Ísland er stofnaðili að NATO, varnarbandalagi sem var stofnað árið 1949 af tólf ríkjum. Síðan hafa bæst við tuttugu ný ríki við Atlantshafsbandalagið, síðast Svíar og Finnar, eftir innrás Rússa í Úkraínu. Við erum hluti af Norðurlandaráði sem var stofnað árið 1952, og Ísland er hluti af evrópska efnahagssvæðinu (EES) með Noregi, og Lichtenstein síðan 1994. Samningurinn er samstarfsvettvangur þjóðanna við Evrópusambandið. Síðan erum við Barentsráðinu (BEAC), Evrópuráðinu (CoE), Eystrasaltsráðinu (CBSS), Efnahagssamvinnustofnun Evrópu (OEEC), og Öryggis- og samvinnustofnuin Evrópu (ÖSE). Þótt við séum eyja, eru ótal brýr yfir, til að hafa gott og gæfuríkt samstarf við aðrar þjóðir. Samstarf sem hefur bæði bætt lífskjör og öryggi lýðveldisins allar götur síðan 17. júní 1944.










Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson13/06/2025 – A7R III, RX1R II, A7C R : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z