Hafnartorg

Landið og sagan byrjar hér

Þarna hófst allt. Í Kvosinni, lægðinni milli Reykjavíkurtjarnar og Reykjavíkurhafnar, eða milli Arnarhóls og Grjótaþorps. Þarna settist fjölskylda Ingólfs Arnarsonar að, fyrsti landnámsmanns Íslands fyrir 1150 árum síðan. Fyrir 273 árum voru Innréttingar Skúla Magnússonar byggðar í Kvosinni, sem gerðu Kvosina, Reykjavík að þorpi og bæ og síðan að borg, höfuðborg landsins. Allt byrjaði í Aðalstræti, þar reisti Ingólfur sinn bæ og Norður-Þingeyingurinn, Skúli Magnússon kom nútímanum hingað heim. Þar er ansi gott safn um tilurð höfuðborgarinnar á sýningunni Borgarsaga í hnotskurn, hlut af Borgarsögusafni Reykjavíkur. Icelandic Times / Land & Saga fór aftur á móti í ljósmyndaleiðangur til sjá og upplifa núið, Kvosina eins og hún er í dag. Njótið.

Austurstræti, og Morgunblaðshöllin í Aðalstræti
Ráðhúsið og Hallgrímskirkja
Skúli Magnússon fógeti, í Fógetagarðinum á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis
Austrurstræti í rauðu
Nýr og gamall tími á Vesturgötu
Listasafn Reykjavíkur við Tryggvagötu
Tollhúsið við Tryggvagötu
Lækjargata
Aðalstræti inn í Grjótaþorpiðeinar

Reykjavík 09/05/2024 : A7C R – FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson