Í Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar stendur þú yfir sýninging Í tíma og ótíma / Time and Time Again. Þar sýna þrjár alþjóðlegar samtímalistakonur, Amy Brener, Arna Óttarsdóttir og Leslie Roberts, verk um tímann. Þarna sem sjónum er beint að margvíslegum birtingamyndum tímans. Tíminn er skoðaður í víðu samhengi, frá heimspekilegum pælingum, til persónulegra vangaveltna um núið, tíminn er nefnilega uppspretta nýrra vangaveltna og innblásturs, eins og þessi sýning svo sannarlega sýnir. Syningarstjóri sýningarinnar er Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
Hafnarfjörður 24/06/2024 : A7C R, RX1R II – FE 1.8/20mm G, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson