![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2021/01/David-Trood.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum - mynd](https://i0.wp.com/www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/UTN/Mynd%20Gr%c3%a6nland%20-%20Copy%20(1).jpg?w=1170&ssl=1)
Grænlandsnefnd utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur skilað skýrslu með tillögum um aukið samstarf Grænlands og Íslands. Í skýrslu nefndarinnar, sem ber titilinn Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum, er ítarleg greining á núverandi stöðu tvíhliða samskipta landanna og kynntar 99 tillögur um aukna samvinnu á fjölmörgum sviðum. Þá er fjallað um land og samfélag, stjórnskipulag og stjórnmál á Grænlandi frá ýmsum hliðum. Össur Skarphéðinsson leiddi starf nefndarinnar sem að auki var skipuð Unni Brá Konráðsdóttur og Óttari Guðlaugssyni.