Þar sem heimurinn bráðnar

Ný sýning í Hafnarhúsi
Ragnar Axelsson: Þar sem heimurinn bráðnar
30.01.–09.05.2021
Ljósmyndasýning Ragnars Axelssonar, Þar sem heimurinn bráðnar, verður opin gestum í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, frá og með laugardeginum 30. janúar. Vegna samkomutakmarkana verður ekki um hefðbundna sýningaropnun að ræða. Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi er opið alla daga vikunnar frá kl. 10-17 og til kl. 22 á fimmtudögum.
Í meira en 40 ár hefur Ragnar Axelsson myndað fólk, dýr og landslag afskekktustu svæða norðurslóða, þar með talið hér á landi, í Síberíu og á Grænlandi. Hann vinnur nú að því að stækka þetta svæði og ferðast mjög víða í leit sinni að myndefni. Í ljósmyndaverkum sínum og ljósmyndabókum endurspeglar hann óvenjuleg tengsl íbúa norðurslóða við öfgakennt umhverfi sitt – tengsl sem eru nú stöðugt að breytast vegna breytinga á loftslagi. Ragnar skrásetur hvernig þessar breytingar hafa áhrif á líf fólks og dýra og hvaða ógn býr að baki hlýnun jarðar.

Ragnar Axelsson – RAX (f. 1958) hóf að taka ljósmyndir strax á unga aldri. Hann lærði ljósmyndun hjá Ingibjörgu Kaldal og varð fastráðinn ljósmyndari hjá Morgunblaðinu aðeins 18 ára að aldri. Með tímanum þróaði hann myndmál sitt sem heimilda- og landslagsljósmyndari og um miðjan níunda áratug síðustu aldar tók hann að vinna að skrásetningarverkefni sem seinna myndaði uppistöðuna í bókum hans um norðurslóðir: Andlit norðursins (2004/2016), Veiðimenn norðursins (2010), Fjallaland (2013) og Hetjur norðurslóða (2020).

Ljósmyndir hans tóku einnig að birtast í alþjóðlegum prentmiðlum, svo sem LIFE, Time, GEO, El País, Newsweek, Stern, Polka og ótal fagtímaritum. Frá aldamótum má heita að ljósmyndir hans séu stöðugt sýndar einhvers staðar í heiminum og stórar sýningar á myndum hans hafa ferðast um Evrópu á undanförnum árum. Ragnar hefur hlotið margháttaðan heiður fyrir verk sín, svo sem fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins, ýmis verðlaun Blaðamannafélags Íslands, útflutningsverðlaun Íslandsstofu, Oscar Barnack verðlaun myndavélaframleiðandans Leica og fleiri viðurkenningar.

Sýningarstjóri Þar sem heimurinn bráðnar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi er Einar Geir Ingvarsson.

Arctic Heroes – a tribute to the sled dogs of Greenland. In 138 images and hunters’ personal stories, the book bears witness to animals’ magnificence and the profound, integral role they play in hunter’s lives. Photographs are taken from 1987 to 2019 convey the elemental, human experience of nature in the Arctic, even at its most unforgiving. Published by Kehrer Verlag worldwide and Qerndu in Iceland. See video here