Skrúðgarðurinn Hellisgerði

Menningargöngur í Hafnarfirði

Hellisgerdi, bornHellisgerdi, gosbrunnurFimmtudaginn 2. júlí kl. 20 annast Steinar Björgvinsson skógfræðingur og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar leiðsögn um skrúðgarðinn Hellisgerði. Gangan er hluti af menningargöngum í Hafnarfirði sem efnt er til alla fimmtudaga í sumar. Síðastliðið sumar leiddi Steinar göngu um sama efni og var ákveðið að endurtaka hana í sumar vegna mikilla vinsælda og fjölda árkorana.Gengið frá  inngangi Hellisgerðis við Reykjavíkurveg.i Hellisgerdi

Yngsti veidimadurinn 4Hellisgerði er einn elsti og fegursti skrúðgarður landsins stofnaður í júní 1923. Steinar Björgvinsson skógfræðingur og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar leiðir göngu þar sem gaumur verður gefinn að trjám og gróðri í garðinum. Í Hellisgerði vaxa margar tegundir fjölæringa auk þess sem þar er talsvert af gömlum trjám, en ræktunarskilyrði í garðinum eru sérlega góð og því má þar finna tré sem annars eru sjaldgæf hérlendis, svo sem gráösp, döglingsvið og hrossakastaníu.
Steinar Björgvinsson  lauk BS-gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2010 en hafði áður útskrifast sem garðyrkjufræðingur frá Reykjum árið 1990 og sem blómaskreytir frá Ingvar Strandhs Blomsterskola árið 2001. Steinar var Íslandsmeistari í blómaskreytingum árin 2004, 2006 og 2012. Hann starfaði í blómaverslunum hér heima og erlendis, einnig hefur hann unnið við ýmsar garðyrkjustöðvar auk þessa að starfa fyrir Skógræktarfélags Reykjavíkur. Steinar hóf störf fyrir Skógræktarfélag Hafnarfjarðar árið 1982 og tók aftur til starfa þar árið 1996. Hann er nú framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar veitir: Steinar Björgvinsson, s. 894 1268

Hafnarborg

Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
s. 585 5790
www.hafnarborg.is

Menningargöngur  í allt sumar:
9. júlí – Neisti listarinnar
Gengið um slóðir listakonunnar Hönnu Davíðsson.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

16. júlí – Rölt um listaslóðir
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur.
Gengið frá Bókasafni.

23. júlí – Víðistaðatún
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt segir fá sögur og skipulagi svæðisins.
Gengið frá Skátaheimilinu við Hjallabraut.

30.júlí – Hugað að náunganum
Gengið um slóðir sem endurspegla þátttöku kvenna í uppbyggingu umönnunar og heilsugæslu í Hafnarfirði.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

6. ágúst – Verslunarsaga kvenna
Lúðvík Geirsson fyrrverandi  bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Gengið frá Hafnarborg.

13. ágúst – Loksins klukknahljómur
Björn Pétursson Bæjarmynjavörður Hafnarfjarðar fjallar um kirkjusögu bæjarins.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins

20. ágúst – Ásgeir G. Stefánsson og framlag hans til íslenskrar byggingarlistar
Pétur H. Ármannsson arkitekt og fleiri fjalla um fjölbreytt framlag Ásgeirs til mannlíf í Hafnarfirði.
Gengið frá Hafnarborg.

27. ágúst – Vettvangur æskunnar
Árni Guðmundsson félagsuppeldisfræðingur leiðir göngu um slóðir unglingamenningar.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.