Söguleg stund

Söguleg stund

Alvöru íþróttahús sem uppfyllir kröfur fyrir alþjóðlegar keppnir í innanhúsíþróttum, eins og handbolta og körfubolta, á að rísa í Laugardal ekki seinna en 2025. Það er inntakið í viljayfirlýsingu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur og Ásmundur Einar Daðason, íþrótta- barna- og menntamálaráðherra undirrituðu í Laugardal í dag. Það hefur ekki bara verið kallað eftir stóru íþróttahúsi, svokallaðri þjóðarhöll, heldur líka nýjum og alvöru þjóðarleikvangnum fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir. En bæði knattspyrnuvöllurinn í Laugardal og íþróttahúsið Laugardalshöll, sem hýsir innanhúsíþróttir eru bæði um hálfrar aldar gömul, og standast ekki þær kröfur sem alþjóðasamböndin setja, fyrir landsleiki.

Laugardalshöllin var tekin í notkun árið 1965, sex árum eftir að framkvæmdir hófust. Frábært hús þá sköpuð af arkitektunum Gísla Halldórssyni og Skarpéðni Jóhannssyni. 

 

Laugardalshöllin er á undanþágu fyrir alþjóðlegar keppnir, en ekki fyrir skemmtanir eins og fer fram í kvöld í höllinni. 
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra (frá vinstri) Ásmundur Einar Daðason, íþrótta- barna- og menntamálaráðherra í miðjunni og  Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur undirita viljayfirlýsinguna í dag í Laugardalnum. 

 

Reykjavík 06/05/2022 14:24-15:39 : A7R III – A7R IV : FE 1.8/14mm GM – FE 1.2/50mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson