Einstök veðurblíða er nú ekki bara á höfuðborgarsvæðinu, heldur á öllu landinu, og verður eitthvað áfram. Icelandic Times / Land & Saga skrapp rétt út fyrir Reykjavík, upp í Heiðmörk, og Rauðhóla til að mynda, og njóta veðurblíðunnar meðal annarra borgarbú og ferðamanna sem nutu haustlitanna og sólageislana sem gerðu hitan um miðjan dag, bærilegan á íslenskan mælikvarða. En dagurinn er orðinn stuttur, sólarupprás í Reykjavík er á morgun klukkan fimm mínútur í níu, og sólsetur klukkan 17:27, dagsbirtan er semsagt rúmur átta og hálfur klukkutími.
Heiðmörk 27/10/2022 : A7C, A7R IV – FE 1.8/135mm GM, FE 1.4/24mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson