Einar Jónsson (1874-1954) er einn þeirra listamanna sem í byrjun 20 aldar sem lögðu grunn að nútímamyndlist hér á landi. Jafnframt er hann sá fyrsti sem gerir höggmyndalist að aðal- og ævistarfi. Einar hélt til Kaupmannahafnar árið 1893, og var í námi hjá norska myndhöggvaranum Stephan Sinding. Árið 1896 kemst hann inn í Konunglega listaháskólann og nýtur styrks frá Alþingi til að klára námið sem hann gerir árið 1899. Verk og ævistarf Einars er hægt að skoða á Listasafni sem ber hans nafn efst á Skólavörðuholtinu.
Reykjavík 15/11/2021 10:20 – A7C : FE 2.5/40mm G
Ljósmynd og texti : Páll Stefánsson