Klukkan níu að morgni, mælir Veðurstofan snjódýpt, og þann 28. október 2025, var met frá árinu 1921 slegið, en snjódýptin í Reykjavík mældist 27 sentímetrar, og bætti gamla metið um 12 sentímetra. En sjókomunni sem byrjaði rétt fyrir miðnætti, slotaði ekki fyrr en upp úr klukkan 16, og má ætla að snjódýptin hafi tvöfaldast frá morgunmælingunni. Það var erfið færð á höfuðborgarsvæðinu, það tók klukkustundir að fara milli bæjarhluta, enda margir á ferðinni á vanbúnum bílum, enn á sumardekkjum. Strætó hélt engum tíma áætlunum, og mörgum vinnustöðum, eins og leikskólum, sundlaugum og listasöfnum var lokað uppúr hádegi, aðallega til að dreifa umferðinni, sem var alveg stífluð fyrri hluta dagsins. Icelandic Times, Land & Saga fór auðvitað á stúfana, hér kemur myndasyrpa frá þessum fallega en snjóþunga degi.









Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 28/10/2025 – A7C R : FE 1.8/135mm GM



