7 Vötn

Maður gæti haldið, að það væru mörg stór og mikil stöðuvötn á Íslandi, svo er ekki. Þrátt fyrir margar og miklar ár, sem falla fram af hálendinu, eða frá jöklunum, sem þekja tíunda hluta landsins. Það eru aðeins tuttugu stöðuvötn sem eru stærri en tíu ferkílómetrar. Stærst eru Þingvallavatn og Þórisvatn, nákvæmlega jafn stór, 84 ferkílómetrar að stærð að meðaltali. Dýpst er Jökulsárlón, níunda stærsta stöðuvatn á Íslandi, 28 ferkílómetrar að stærð, og stækkar óðfluga. Jökulsárlónið er 249 metra djúpt, meira en helmingi dýpra en tvö þau stærstu, sem eru rétt rúmlega 100 metrar djúp, þar sem þau eru dýpst. Hér koma myndir frá mínum sjö uppáhaldsvötnum í lýðveldinu.

Mývatn, norður í Suður-Þingeyjarsýslu
Þingvallavatn, Árnessýslu
Skaftá við Langasjó, austur í Vestur-Skaftafellssýslu
Kvíslavatn, Sprengisandi
Ölvesvatn, Skaga
Svínafellslón, í Öræfasveit
Þingvallavatn, Árnessýslu

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Ísland: 18/11/2025 – A7RIV : FE 2.8/100mm GM, FE 2.8/90mm G FE 1.2/50mm GM