Gistinóttum í maí fjölgaði um 5%

Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í maí síðastliðnum voru 725.000, en voru 692.100 í sama mánuði árið áður. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 430.300, gistinætur í gegnum vefsíður á borð við Airbnb 120.800, og 173.900 á öðrum tegundum gististaða, svo sem farfuglaheimilum, hostelum og íbúðahótelum.

Til viðbótar voru gistinætur erlendra ferðamanna utan hefðbundinna gististaða áætlaðar 52.800 í maí, þar af 26.700 í bílum og 26.100 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 2% í maí
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 311.700, sem er 2% aukning frá sama mánuði árið áður. Um 55% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 171.400.

Um 86% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn. Erlendum gistinóttum fjölgaði um 1% frá maí í fyrra en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 12%. Bandaríkjamenn gistu flestar nætur (91.600), síðan Þjóðverjar (30.300) og Bretar (28.300), en gistinætur Íslendinga voru 43.200.

Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2017 til maí 2018, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.288.000 sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum
Maí Júní–maí
2017 2018 % 2017 2018 %
Alls 304.452 311.712 2 4.153.448 4.287.985 3
Höfuðborgarsvæði 176.405 171.446 -3 2.575.154 2.591.636 1
Suðurnes 22.303 25.844 16 260.368 298.127 15
Vesturland og Vestfirðir 15.337 19.870 30 182.661 198.070 8
Norðurland 28.377 24.189 -15 292.684 302.886 3
Austurland 9.509 8.927 -6 109.927 107.609 -2
Suðurland 52.521 61.436 17 732.654 789.657 8
Íslendingar 38.506 43.155 12 433.780 422.163 -3
Erlendir gestir 265.946 268.557 1 3.719.668 3.865.822 4

58% nýting herbergja á hótelum í maí
Herbergjanýting í maí 2018 var 58,4%, sem er lækkun um 3,8 prósentustig frá maí 2017 þegar hún var 62,2%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,4% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í maí var best á Suðurnesjum, eða 74,2%.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggir á niðurstöðum úr landamærarannsókn meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari upplýsingar um lýsigögnin má nálgast á vef Hagstofunnar.

Tölur fyrir 2017 og 2018 eru bráðabirgðatölur. Unnið er að endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðerni ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta 2017 en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna.

Talnaefni
Hagstofa Íslands gefur mánaðarlega út tölur um fjölda gistinátta, gesta og magn gistirýmis á hótelum, auk áætlaðra talna um fjölda gistinátta á gistiheimilum og öðrum tegundum gististaða. Einnig birtir Hagstofa Íslands tölur um eftirfarandi skammtímahagvísa í ferðaþjónustu mánaðarlega eða (í tilviki VSK-veltu) á tveggja mánaða fresti. Auk þess má vekja athygli á tölum sem birtar eru árlega um farþega með skipum.

Talnaefni:
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar til landsins

 

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0