Fjöldi gistinátta í júní óbreyttur frá fyrra ári

Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í júní síðastliðnum voru 1.188.600, en þær voru 1.195.000 í sama mánuði árið áður. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 589.200, gistinætur á öðrum tegundum gististaða (svo sem farfuglaheimilum, svefnpokaplássi og tjaldsvæðum) voru 408.600, og 190.800 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Til viðbótar voru gistinætur erlendra ferðamanna utan hefðbundinna gististaða áætlaðar 55.400 í júní. Þar af voru 26.600 í bílum utan tjaldsvæða og 28.800 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Fjöldi gistinátta í júní nánast óbreyttur frá fyrra ári
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 410.800, sem er 4% aukning frá sama mánuði árið áður. Um 54% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 221.300.

Um 90% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn eða 369.100. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (131.200), síðan Þjóðverjar (43.900) og Bretar (31.300), en gistinætur Íslendinga voru 41.600.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2017 til júní 2018, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.301.000 sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum
  Júní   Júlí–júní  
  2017 2018 % 2016-2017 2017-2018 %
             
Alls 395.881 410.753 4 4.180.086 4.301.284 3
Höfuðborgarsvæði 217.819 221.300 2 2.582.203 2.595.117 1
Suðurnes 25.841 29.085 13 269.510 300.128 11
Vesturland og Vestfirðir 25.634 26.494 3 184.649 198.930 8
Norðurland 36.397 38.154 5 293.817 304.643 4
Austurland 16.227 14.372 -11 109.460 105.754 -3
Suðurland 73.963 81.348 10 740.447 796.712 8
             
Íslendingar 24.115 41.645 73 409.600 439.520 7
Erlendir gestir 371.766 369.108 -1 3.770.486 3.861.764 2

 

78% nýting herbergja á hótelum í júní 
Herbergjanýting í júní 2018 var 77,7%, sem er lækkun um 3,2 prósentustig frá júní 2017 þegar hún var 80,9%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,5% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í júní var best á Suðurnesjum, eða 84,7%.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr landamærarannsókn meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Tölur fyrir 2017 og 2018 eru bráðabirgðatölur. Unnið er að endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðerni ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta 2017 en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna.

Talnaefni
Hagstofa Íslands gefur mánaðarlega út tölur um fjölda gistinátta, gesta og magn gistirýmis á hótelum, auk áætlaðra talna um fjölda gistinátta á gistiheimilum og öðrum tegundum gististaða. Einnig birtir Hagstofa Íslands tölur um eftirfarandi skammtímahagvísa í ferðaþjónustu mánaðarlega eða (í tilviki VSK-veltu) á tveggja mánaða fresti.

Talnaefni:
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar til landsins