Það er engin vegur á Íslandi eins hrikalegur og Kjaransbraut, 50 km / 30 mi langur, vegur, sem liggur milli Þingeyrar í Dýrafirði og Hrafnseyrar í Arnarfirði. Vegurinn er kenndur við Dýrfirðinginn og ýtustjórann
Elís Kjaran Friðfinnsson, sem lagði hluta vegarins einn og óstuddur sumarið 1973. Þá kláraði hann hrikalegasta kaflan úr Dýrafirði að Lokinhömrum í minni Arnarfjarðar, opnaði hringveg fyrir skagan, sem er nafnlaus. Vegurinn sem er með vegnúmerið 622, liggur ekki bara í þverhníptum björgum. Að hluta til undir Skútabjörgum í norðanverðum Arnarfirði liggur hann í fjörunni, og þarf að sæta sjávarföllum til að komast leiðar sinnar. Vegurinn er óbrúaður, einbreinn og aðeins fær jeppum og jepplingum, á sumrin og fram á haust.
Vestur-Ísafjarðarsýsla 14/09/2020 20:49 & 15/09/2020 10:43 – A7R IV : FE 1.8/20mm GM
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson